Eftir því sem ég best veit er Oblivion ekki enn kominn með útgáfudag, ekki einu sinni útgáfuár. Á hinn bóginn hefur komið fram í viðtölum við Todd Howard að leikurinn sé hannaður fyrir komandi kynslóð leikjatölva (Playstation 3, Xbox 2 og hugsanlega Nintendo Revolution), og ef maður miðar við útgáfuramma þessara véla (allaveganna NR og PS3), sem koma út árið 2006, þá má með sanni segja að besta dagsetningin sé 2006.