Leikjaframleiðandinn Black Isle gaf í dag út þá tilkynningu um að aukapakkinn fyrir Icewind Dale, Heart of Winter, væri á leiðinni í búðir.
Í Icewind Dale: Heart of Winter eru fimm ný svæði til að kanna, auk bæjarins Lonelywood. Experience capið hefur verið hækkað til muna, og er nú hægt að komast á level 30 (ég veit ég skrifaði að xp capið væri 2,900,000 xp, en lvl 30 er staðfest af Black Isle). Auk þessa bætast við nokkrir nýjir galdrar eins og Abi-Dalzim’s Horrid Wilting og Blade Barrier. Margir nýjir galdrahlutir bætast auk þess við í hlutaflotann, en þar á meðal er Ring of the Will-o-Wisp, en hann gerir eiganda sínum kleyft að skjóta eldingum á óvini sína. Ekki má heldur vanta á óvini sína, en þeirra á meðal eru barbarar norðursins.
Til að skoða press releasið getið þið smellt <a href=”http://www.prnewswire.com/cgi-bin/micro_stories.pl?ACCT=000952&TICK=IPLY&STORY=/www/story/02-20-2001/0001431041&EDATE=Feb+20,+2001”>hér</a>.

Ps. Það verður gaman að spila þennan leik. Þess má geta að á þeim fansites sem ég fór á var ekkert á þetta minnst.

Willie
“Fyrstur með fréttirnar”