Bioware og Interplay eru víst búnir að staðfesta aukapakkann. Hann á að koma út 31. maí. Annars eru líka DVD og Special Edition útgáfur af leiknum á leiðinni, en það er áætlað að þeir komi út 23. febrúar. Ef þið trúið þessu ekki, og það er líklegt, þá endilega kíkið á þennan link:
http://www.pcgamer.co.uk/news/news_page.asp?news_id=3364Annars vakti annað einnig áhuga minn. Ég fór á www.gamedata.com og kíkti á þessa grein. Ég get klórað mig gegnum frönsku (þeir nota svo mikið enskt slangur að það þarf bara að finna öll ensku orðin í textanum og tengja þau saman ;), og fann þetta einnig neðst á síðunni. Það skrítna var að það var á ensku:
————————————————–
UPDATE : Sorry guys, apparently Interplay US was not happy of Interplay France when they have learned that some infos about upcoming BGII expansion, Throne Of Baal have been given on an official press release. Therefore, Interplay France has asked us to delete all details about it. BTW my english is better than your french, so spare me :p
————————————————–
Ekki spyrja mig, en ég held persónulega að Interplay US hafi ætlað sér að geyma fréttina um aukapakkann þar til að Special Edition væri komið út. En því miður virðast Interplay Frande hafa gert mistök!
Royal Fool
Bringing smiles to sappy faces