Allt í lagi, fínt. En burtséð frá nýgræðingslegum spurningum held ég að þetta sé ekki spurning um að kunna á byssurnar í COD4 og MW2 (veit ekki með hina leikina). Ef þú kannt á Avtomat Kalashnikova 1947 kanntu nokkurn vegin á hina hríðskotarifflana (fyrir utan þá sem eru hálfsjálfvirkir og þá sem skjóta 3 skotum í einu). Það sama má segja um vélbyssurnar. Þú sérð óvin og reynir að hitta (annað mál með cs þar sem það þarf að gera sér grein fyrir því að bakslagið er allt öðruvísi en í COD) En núna er umræðan komin í annan farveg en í upphafi og við skulum hætta að rífast/rökræða. En þar sem ég á síðasta orðið vinn ég. :)
Enn og aftur vil ég benda á að það sem kemur fram hér á undan er aðeins mitt álit. Þú getur verið ósammála en ef svo er þá er það þitt vandamál og þínar röksemdafærslur munu ekki breyta mínu áliti á nokkurn hátt.
Texta þennan má eigi afrita með neinum hætti, svo sem ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan sambærilegan hátt, að hluta eða í heild án skriflegs leyfis höfundar.
P.S. Forvitnir fá ekki að vita.
——
Ég tala íslensku.