Gleðileg jól !
Já ég veit að mörg ykkar takið andköf og veltið þvi fyrir ykkur hvernig í ósköpunum blessaður karlpungurinn ég dirfist að halda slíku fram. Í huga þessa sama fólks er jóladagur þann 25.
þ.e.a.s. á laugardaginn eða daginn eftir morgundaginn.
Það er leiðinlegur misskilningur.
Vissulega er rétt að jólin eru líka þann 25., en þau byrja á morgun, þann 24.
En afhverju?
Hafið þið velt því fyrir ykkur afhverju jólin eru hringd inn klukkann 6 á aðfangadag?
Það er vegna þess að það að halda jól er ævaforn siður.
Það að nýr dagur hefjist við miðnætti er tiltölulega nýtt viðhorf. Lengi vel á Íslandi var miðað við að nýr dagur hæfist klukkan sex. Klukkan sex eftir aðfangadag gekk sá 25. í garð og jólin voru hringd inn. Þá voru allir til messu.
Í mörgum löndum var litið svo á að dagurinn hæfist klukkan 12 að miðnætti (eins og núorðið er yfirleitt gert á Íslandi). Í þessum löndum tíðkast þess vegna að sama skapi að jólin eru hringd inn að miðnætti. Þá gengur fólk til miðnæturmessu og slær síðan til hátíðar snemma daginn eftir.
Þetta útskýrir líka afhverju aðeins helmingurinn af aðfangadag er lögboðinn frídagur, meðan hinn helmingurinn er venjulegur vinnudagur.