Þykir pínu kjánalegt að Joseph hafi unnið. No fliem Joseph, þú ert klassagæi!!
Bara það að Andrés hefur spilað alla leikina og verið mjög góður í þeim öllum. Hann hefur líka lennt í nánast öllu sem spilari hefur lent í. Bustaður ranglega fyrir hax, verið í fremstu clönum landsins ásamt svona spútnik liðum, verið dýrkaður og hataður þó meira það fyrra ásamt mörgu öðru. Og nei Andrés hackaði ekki.
Ég get sagt það út frá minni reynslu á Andrési að hann er fáum líkur. Ég hef spilað með honum dota í allnokkurn tíma þó það hefur farið minnkandi undanfarna mánuði. Skilningur hans á þessu mappi er ótrúlegur og eftir að hafa spilað með og á móti honum hundruði leikja þá get ég sagt að þetta er sá besti sem við höfum.
Allir sem ég þekki, sem hafa verið með honum í clani hafa sagt að hann er ótrúlegur. Það er enginn sem les leikinn eins og hann. Það er því fáránlegt með öllu að hann sé ekki capteinn landsins.
Miðað við úrslitin úr könnun sem gerð var hér á huga er drezi landsliðscapteinn. Ég held að það sé eitthvað búið að eiga við þetta. Það gæti verið útaf lýsingu Josephs ásamt aldursmuni þeirra.
Ef þið cod4 kallar ætlið að ná eins langt og þið getið þá tel ég eina leiðin sé að hafa Andrés sem capteininn. Ég því hvet hann Gauja að segja af sér. Take one for the team!
Þetta er mitt álit.