Hefur ekkert að gera með ismúví þráðinn.
Eins og einhver sagði þá er sniðugt að fá nýja menn í þetta. Ég hef ekki brennandi áhuga á þessu nú orðið og sé ekki ástæðu til að eyða tíma í þetta lengur.
Aðeins eitt sem ég vill segja við tilvonandi umsjónarmann/menn. Ég hef alltaf litið á huga/cod sem algjört center þessa samfélags. Haldið ritskoðun í lágmarki, ekki taka neinu persónulega og stuðlið að opinni og frjálsri umræðu um hvernig má bæta mót, síðuna og einstaklinga. Ef það tekst munið þið ekki standa ykkur illa. Þetta áhugamál þarf ekki hetju, bara umsjónarmann.
Þakka þeim sem gátu gott metið, ég lagði mig fram við að bæta þennan stað enda skipti hann mig máli. En auðvita eru það bara lágmarkskröfur.
GG.
Bætt við 24. desember 2008 - 14:25
Shit, ég er strax farinn að sakna þessa. Best að hlaupa.