Sælir, ég er að reyna að fá aðeins meira fps og vinur minn benti mér á að setja DirectX í 7 í Graph. options. Jæja ég geri það en fæ bara upp þetta error þegar leikurinn restartar sér:

DirectX Error
DirectX(R) encountered an unrecoverable error.
Check the DirectX faq for possible solutions.

Og ég ýti á ok og fæ upp svona “FAQ”.
ég prufaði að setja DirectX upp aftur, setja inn nýjann video driver og hef nánast prufað allt. Hefur einhver lent í sama vanda og fundið útúr þessu?