Ég hef ákveðið að leggja niður AoD. Aðal ástæða er sú að ég er bara í of mörgum clönum og er allt of mikið fyrir mig að gera. Þar sem ég fann engan til að stýra þessu með mér þá er fátt annað mögulegt en þetta.
Mjög miklar líkur eru þó á að ég hrindi AoD af stað einhvertíman seinna. Enda eigum við nú heimasíðu, korka og boli sem bíða allt eftir að vera notað ;)
Eftirfarandi aðilum vil ég þakka fyrir þennan tíma:
Maeth/ArachnID/Cruentus - Þogga, en hann er búinn að vera frábær vinur og er mjög skemmtilegur spilari.
Venni - Fyndið kjánaprik sem er alltaf gaman að og gaman að spila með.
Romeliz - Óttar, Stendur sig eiginlega alltaf vel þrátt fyrir að hafa ekki spilað mánuðum saman, frábær drengur þar á ferð!
SainT - Krissi, ekki búinn að vera lengi að spila CoD en tekið mjög hröðum framförum á stuttum tíma, enda long-time nágranni og snýkjudýr sem keypti CoD því ég sagði honum að gera það ;)
EinStein - Finnur, hann er spes! Hann er góður og frábær einstaklingur. Þrátt fyrir næstum dagleg rifrildi endum við alltaf sterkari saman ;)
BerserK - Skúli, Hann er frábær spilaru. Þrusu góður og skemmtilegur einstaklingur líka.
& GoDzMacK- Gauti, fyrir að hafa ekki spilað neitt en haldið ircinu gangandi og skemmtilegu ;)
Þakka ykkur kærlega drengir. Þið hafið verið frábærir.
Kveðja
Hjalti, Killerade.