Ágæta EVE áhugafólk!
Þetta Alpha próf er samvinnuverkefni CCP og Símans Internet, en Síminn er einn af hluthöfum og samstarfsaðilum CCP. Það var því eðlilegur valkostur að bjóða leikáhugamönnum sem hafa leikjaáskrift hjá Símanum Internet að taka þátt í þessu með okkur. Ákveðið var að prófa leikinn með litlu úrtaki til að byrja með og reyndist því nauðsynlegt að takmarka þátttökuna við markhóp sem tengdist vel markmiðum prófananna. Þetta er í fyrsta sinn sem EVE leikurinn er prófaður af öðrum aðilum en starfsmönnum fyrirtækisins en ekki það síðasta. Öðrum hópum munu því gefast tækifæri á aðstoða okkur við uppbyggingu leiksins síðar, og má reikna með að þau tækifæri verði fleiri en eitt það ár sem í hönd fer þangað til leikurinn fer endanlega í loftið. Fylgist því vel með fréttum og tilkynningum á www.eve-online.com.
Komið öll með þá!
Skúlína Kjartansdóttir,
Gæðastjóri CCP