Vill bara taka það fram í byrjun að ég er í Fade Union :)
Í gær voru umþaðbil 10-15 hostile eve spilarar sem fóru í systemið c4c-z4 (Fade Union home system) og byrjuðu eitthvað að skemmta sér að skjóta á þá sem voru þarna.. FU (fade union) voru með lítinn flota niðri í Pure Blind region og náttúrulega fóru þeir strax af stað til að reyna að stöðva þessa náunga (ég var í þessum flota btw.) Á miðri leið þá er okkur sagt að NSA séu meira en tilbúnir að hjálpa okkur eitthvað við þetta en við segjum svona “Nei takk, held við getum ráðið við þetta núna” eða eitthvað í þá áttina. Þeir hafa greinilega tekið þetta sem já, því þegar við komum inn í c4c-z4 og erum búnir að vera þar í einhvern tíma á gate, þá verður gate-ið MJÖG active..
Eftir umþaðbil 40 sek. var okkar ca. 30 manna floti alltíeinu orðinn eitthvað um 70-75 menn! Við sátum á gate í einhverjar mín. þegar gulir kassar láta sjá sig 100 km frá okkur.. okkur fljótu mönnunum ( friggum, ceptorum) er sagt að flýta okkur til þeirra svo hægt sé að warpa á okkur sem gang. Ég varð fyrstur upp til þeirra og byrja að warp scrambla einn Apocalypse þar sem allir þessir gaurar reyna að warpa út, sem er ekkert skrýtið miðað við hvaða tölur við vorum með. Það endaði með því að flestir þeirra komust út nema einhver 2 battleship, og þeir voru teknir frekar fljótt niður. Svo lét rest ekkert sjá sig meir nema þegar að local tölur voru farnar að minnka.
Spurning mín er, var einhver annar Íslendingur, sem þá væntanlega les huga.. þarna í þessarrin “uppákomu”? :)