Eina sem þú þarft að gera til að vera vondur er að fórna fólki(helst krökkum), eyðileggja hús, láta dýrið þitt éta fólk eða að þú hjálpir fólki að bæta langstökksmetið með því að taka það upp og kasta því varlega, sem sagt að kasta því 5000 km. Þú sérð hvenær þú ert orðinn frekar vondur þegar að hofið þitt er orðið dökkbrúnt og oddhvasst og höndin þín er orðin svört eða dökkrauð og með klær. Ef þú kennir dýrinu þínu að vera vont þá ætti það að verða dökkara og líta grimmdarlegar út( treystu mér, þú tekur eftir því þegar að það er orðið vont).