Þetta er sönn saga sem kom fyrir fyrir ekki allt of löngu:
Ég var að reyna að kenna tígrisdýrinu mínu þessa stóru sprengingu (man ekki nafnið á henni) og var með kraftaverkið í kúlu. Til að spara tíma hafði ég náð í slatta af kúlum (svona 30 kúlur um það bil, var í skirmish) og svo ætlaði ég að kenna dýrinu. En því miður kom í ljós að tölvan var að lumbra á einu þorpi sem að ég átti þannig að ég gleymdi dýrinu mínu :( og fór burt að bjarga leifunum af þorpinu. Eftir svona tíu mínútur kom ég aftur til að kenna dýrinu en þá var hel***** búið að ákveða að spila handbolta og það notaði auðvitað kraftaverka kúlurnar. Svo hafði það greinilega notað sjóinn sem mark. Ég vissi að ég gat ekkert skammað dýrið núna (það var búið með kúlurnar og var bogið niður að varpa drulluköglum á hendina mína:D) en til að róast aðeins fór ég að “skemmta mér aðeins” með eitt af þorpunum mínum. Því miður fyrir þorpið þá róaðist ég ekki fyrr en það var ónýtt, ég hafði nefnilega notað allt sem ég hafði og svo dýrið mitt auðvitað. Það voru svona um það bil 3 eftirlifendur. Ég ætlaði að byggja þorpið upp á nýtt með þessu fólki en þá kom auðvitað íþróttastjarnan dýrið mitt og sparkaði einum gauknum út í sjó (þetta er one god skirmish level, þetta var egypska þorpið). Til að stoppa það þá þurfti ég að buffa það. Þegar að það stóð að því liði illa þá bráðnaði ísinn í kringum hjarta mitt og ég leyfði því að fara. En hvað þá??? Dýrið tekur annan kall upp, kastar honum á kletta og étur konuna!!!! Þá gafst ég upp, byrjaði upp á nýtt og fékk mér nýtt dýr:).
Frekar fúlt,bróðir minn reyndar hló sig brjálaðan þegar að dýrið var að spila fótbolta (ég var að reyna að kenna honum hvernig það átti að ala upp dýrin:D).
Kv. Sigtryggur.