Skoðaðu þetta mjög vel. Talaðu við menn sem hafa reynslu af ákveðnum gerðum.
Það er til fullt af vitleysingum bæði hérna inná og allstaðar. Ekki t.d fara bara og kaupa þér burton og setja fullt af pening útaf einhverjir gæjar segja að það sé best þó þeir hafi ekki hugmynd um það.
tökum sem dæmi Rossignol, góð bretti, getur fengið góðar plötur fyrir byrjendur allt upp í pro. Eins og staðan er í dag eru þær orðar því miður mjög dýrar eins og sjálfsögðu allt annað.
Og svo að menn fari nú ekki að tuða yfir því sem ég minntist á með burton(þó þær séu eflaust fínar) þá getum við nefnt merki eins og Venue, þekkja það eflaust ekkert rosalega margir, en eru með margar mjöööög góðar plötur. Þeir höfðu verið að hanna og þróa snjóbretti í um og yfir 6 ár, áður en þeir settu fyrstu plöturnar á markað.
Ekki bara kaupa bretti eftir því hversu dýrt það er því þá hlýtur það að vera gott, fáðu góðar upplýsingar og skoðaðu gæðin mjög vel.