yo dúd.
Ég og nokkrir félagar mínir erum í brettateymi sem við köllum 220 eða Team two twenty og við stóðum fyrir þessari brimbretta og rokkhátíð í Vík þessa helgi og vorum með svaka tónleika og risa varðeld og nóg af búsi og skvísum. Ég fór út á bretti á laugardeginum en það var ekkert merkilegt brimið, alltof stutt á milli alda þá, en vinir mínir fóru á sunnudeginum og það var víst öllu skárra.
Það geta verið drullu góðar öldur á vík en það þarf að fylgjast vel með ölduspánni til að varast hið margrómaða útsog sem getur orðið þar á bæ.
Alla vega var þarna killer partí. Herra Möller, Noise, Út/exit og Kántríbandið Hnakkarnir spiluðu þarna á tónleikunum!