Hef ekkert á móti Burton snjóbrettum, hef ekki einu sinni prufað burton plötur þannig að ég hef ekkert úta þær að setja.
Hinsvegar á ég marga félaga sem hafa átt burton og flest brettin hafa brotnað, ekkert endilega á stórum pöllum bara kannski að renna sér í hörðu eða eitthvað minniháttar.
En það er góður punktur hjá þér samt að MJÖG margir hér á klakanum renna sér á burton og það gæti verið skýringin.
En í sambandi við fyrra svar mitt, þá hef ég átt tvennar burton bindingar og báðar eru núna bókstaflega í henglum. Það er eina reynslan min af burton og hún reyndist þvi miður léleg en plöturnar gætu þessvegna verið mjög góðar.
Og þetta um GAP? ég hef ekkert á móti GAP.
P.S til hamingju með nýju myndina ykkar :)