Fór þarna í dag, hellidemba…kom klukkan hálf sex, hópur af strákum fyrir utan og biðu allir eftir að komast inn að skeita en enginn kemur. Biðum þarna alveg heillengi þangað til að við hringdum niðrí Brim og liðið þar talaði við einhvern sem ræður yfir parkinu og nei nei þá er bara lokað af því að það var búið að vera svo gott veður og eitthvað kjaftæði. Mér finnst þessi þjónusta bara hreint út sagt ÖMURLEG og að maður sé að dröslast úr Garðabænum uppí bæ lengst uppí rassgat til að fá að skeita smá og það er ekki einu sinni hægt að opna helvítis húsið þá má bara sleppa þessu. Ef að það á að gera eitthvað, gera það þá almennilega.
..::darkjesus::..