Ókei, ég ætla bara að segja frá ógeðslega fyndnu slammi sem að því miður náðist ekki á klippu!

Ég var að reyna að gera boardslide á svona 2,5 metra löngu raili og náði því næstum því en fór bara ekki nógu hratt! Þannig að ég bara gaf í og ollaði upp á það en brettið vildi ekki renna á railinu þannig að ég skaust fram fyrir mig og spriklaði í loftinu og lenti með hausinn á railinu! Síðan eftir smá stund sagði ég við Berg (bergur75) að mér væri illt í fætinum sem var reyndar satt! Ég ætla bara að segja að það er ekki þægilegt að slamma svona!

PS. Vitni=bergur75!