Til að gefa ykkur smá mynd af kostnaði við að panta bretti af Ebay þá pantaði ég mér splunkunýtt Burton Custom.
Ég borgaði 430 usd fyrir brettið, sendingarkostnaður var 150 dollarar.
Þetta gerir um 35 þús kall hingað til lands komið, vsk af þessu öllu saman er uþb 10 þúsund, og samkvæmt tollstjóra er tollur á íþróttavörum 10%, þannig að heildarupphæðin er um 49 þúsund fyrir brettið. Samskonar bretti kostar 70 kallinn í GÁP þannig að mar er ad spara sér umtalsverðann pening.
Vona að þetta varpi ljósi á þetta =)