Ekki er enn ljóst hvort og þá hvar bardagi Tyson og Lennox Lewis mun fara fram, þrátt fyrir að Tyson hafi í gær verið heimilað að keppa í Washington DC. Tyson hefur nú einnig verið heimilað að keppa í Tennessee, og skipuleggjendur keppninnar líta Memphis hýru auga sökum nálægðar við spilavíti handan fylkismarkanna í Mississippi.