Styrktarmót fyrir íslenska ólympíuliðið verður haldið í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði nk. laugardagskvöld. Allur ágóði rennur óskiptur í ferðasjóð ólympíuliðsins sem heldur til Ítalíu seinna í mánuðinum til undankeppni fyrir Ólympíuleikanna í Peking 2008.
Það verður uppboð á hinum ýmsu vörum sem rennur beint í sama sjóð, og fólk er hvatt til að mæta og styðja við bakið á strákunum okkar.
Keppnin hefst kl. 21.00 og er miðaverð 1.000 kr.