Gatti bjóst alls ekki við tapi. Hann var að spá í allt öðrum hlutum á þessum tíma og að vonast eftir stærri bardögum. Manfredy var ekkert að leika eftir handritinu og Gatti tók hann ekki nægilega alvarlega.
Mayweather keppti seinna á árinu við Floyd Mayweather og var stoppaður í annarri lotu. Gatti tapaði hins vegar tveimur bardögum í röð fyrir Ivan Robinson og þyngdi sig upp um tvo flokka í kjölfarið. Manfredy var hins vegar enn í léttari kantinum keppti ekki ofar enn í léttvigt það sem eftir var ferilsins. Tók reyndar Ivan Robinson í gegn, en tapaði svo í titilbardögum fyrir Stevie Johnston, Paul Spadafora, Diego Corrales og Julio Diaz. Hann stóð sig vel gegn öllum nema Corrales og Mayweather, en varð því miður aldrei meistari.
Málið var sem sagt að það var aldrei aftur stund eða tækifæri fyrir “rematch”.