Tyson að verða klár fyrir Lewis
Það stefnir allt í að draumabardaginn á milli Bretans Lennox Lewis og Bandaríkjamannsins Mike Tyson verði að veruleika næsta vor. Tyson ruddi einni hindruninni í átt að bardaga við Lewis úr vegi með því að sigra Danann Brian Nielsen í Parken á laugardaginn. Líklegt þykir að Lewis ryðji seinni hindruninni úr vegi í nóvember með því að endurheimta WBC og IBF titlana frá Hasim Rahman. Tyson er áskorandi númer eitt hjá WBC og ef Lewis vinnur Rahman þá munu þessir fornu fjendur að öllum líkindum mætast í mars á næsta ári. Tyson mun aðeins ná einu bardaga fyrir þann tíma en hann hefur sagt að hann vilji fá tvo bardaga til þes að skerpa sig fyrir átökin gegn Lewis.