Fyrir átta árum hefði hann lent í sömu vandræðum og hann lenti í með Frankie Liles sem áhugamaður og Eric Harding sem atvinnumaður. Roy Jones eldri var alltaf skíthræddur við góða örvhenta boxara eins og Michael Nunn, því hann vissi að Roy væri ekki jafn góður gegn þeim. Hávaxnir gagnhöggaboxarar eins og Harding og Tarver hefðu alltaf komist lengra en fyrstu lotu. En það er alveg satt að Roy hefði staðið sig mun betur og að hann sé í raun almennt séð betri boxari. Hins vegar er Tarver með rétta stílinn til að sigra Jones, rétt eins og Forrest vinnur Mosley, Holyfield Tyson og Norton Ali. Roy Jones var góður, en enginn boxari gat/getur gengið á vatni.