Já, mjölnir eru að vinna alveg ótrúlega gott starf.
Mér finnst SciFi vera full-dýrt og kennslan í pumping iron er oft svolítið þunn í augum byrjandans, eða það er allavega mín reynsla. Ég kom þangað inn og kunni nánast ekkert, þeir sem kenndu mér fyrst voru þeir sem voru að æfa með mér. Annars fékk ég alveg einhverja kennslu frá honum Jimmy líka, en mér finnst að hann mætti fara meira útí það *hvernig* tæknin á bakvið árásirnar eru, frekar en að láta mann púla við að gera þær vitlaust nokkur hundruð sinnum.
Svo heyrist mér að free fight námskeiðin séu ekki í gangi akkúrat núna, en þau byrji aftur ef fleiri skrái sig á þau. :)