Ert látinn hita upp og liðka þig með t.d. sippi og liðkunar æfingum inn á milli. Svo eru kannski svona “leikir” þar sem þú átt að slá í hné á mótherjanum eða vera í svona “froskastellingu” og reyna að hrinda mótherjanum og svo kenna þeir þér grunninn og þú ert látinn slá út í loftið og svo eru kannski 2 og tveir látnir æfa eitthvað saman og svo farið á púða og einhverjar æfingar gerðar. Yfirleitt endar þetta á armréttum, kviðæfingum og bakfléttum og einhverju svona.
Frekar erfitt fyrst en þú ættir að gefa þessu séns í mánuð áður en þú dæmir þetta… ekki alltaf gaman fyrst en svo verður þetta það skemmtilegasta sem þú gerir !!
Þetta var allavega eitthvað í þessa átt síðast þegar að ég fór á box æfingu.