Hann var alltaf að worka mig frekar illa með combo's, því ég kann lítið inni og held mig alltaf úti.
Svo byrjaði ég að slá frá mér í staðinn fyrir að blocka mig inni þegar hann kom, og hitti hann nokkru sinnum.
Dabbi varð bálreiður og lamdi greyið mig fastar en áður, og réðst meira á mig.
Ég byrjaði aftur að blocka og ég lærði eitt sem ég hefði aldrei átt að læra, af strák sem æfði með mér í danmörku þegar ég var nýr.
Þegar hann blockaði fór hann niður og beygði sig niður með hausinn og hélt fyrir andlitið á sér. (Svona staða eins og þegar þú ælir í hendurnar á þér standandi).
Dabbi byrjaði að kýla í hausinn á mér (Note: Ekki andlitið) Og ég þorði ekki annað en að bíða eftir því að hann hætti og gæfi mér 8 sek. En það gerðist ekki.
Þegar hann var búinn að vera á mér í svona 5-8 sekúndur, kýlandi stanslaust í hausinn á mér, þá bara datt ég.
Þetta var eins og að sofna. Ég vissi ekkert að ég hefði dottið fyrr en ég opnaði augun nokkrum sekúndum seinna og Dabbi hjálpaði mér upp.
Ég hafði þá rotast í nokkrar sekúndur en gat samt komið mér upp aftur. Ég var ringlaður og með hausverk þannig að við hættum þessu bara.
Svona var ég rotaður af Dabbi The King eins og hann vill kalla sig hehe. :P
P.S: Einn daginn rota ég Dabba.
Moderator @ /fjarmal & /romantik.