Tyson fer ekki í fangelsi
Mike Tyson mun ekki verða dæmdur fyrir líkamsárás gegn 2 mönnum fyrir utan hótel í Brooklyn en þarf í staðinn að vinna að samfélagsþjónustu í 100 klukkustundir og mun hann kenna börnum og unglingum box. Samkomulag um þetta náðist milli dómara og lögfræðinga Tysons og munu allir vera sáttir við málalok. Nú er bara spurningin hvort kallinn fari ekki að einbeita sér að því að fara í hringinn aftur og gera einhverjar rósir.