Þetta viðmót get ég alveg s.s. tekið undir að vissu leyti, en athugaðu Daði það er ekkert verið að draga menn í neina dilka hérna, og hefur ekki verið gert að minni eða okkar hálfu, ég veit ekki betur en að þú sért niður í gymmi hjá okkur (HR) með mági þínum honum Dodda sem keppir fyrir Reykjaness að æfa, svo og Skúli Ármanns sem kemur oft á æfingar hjá okkur, ekki ber þetta mikinn vott um ríg er það?
Það sem þú átt vonandi við er það að þessi hópar hafa ekki alltaf verið sammála um áherslur, sem er mikið rétt enda hefur það ekki
komið til að góðu með “séra” Bubba sem forgöngu mann ykkar að
vasast í hagsmunamálum hreyfingarinnar sem hann á ekkert með að gera, og þeir sem eru ekki “JÁ menn” í hans garð eru bara
vitleysingar og óalandi hálvitar ef ég vitna BEINT í ummæli hans
nú á dögunum.
Gæti verið að þarna liggi rót vandans að einhverju leiti?