Hnefaleikafélag Reykjavíkur stendur fyrir hnefaleikasýningu laugardaginn 21. Desember í æfingasal sínum í faxafeni. Þar munu sýna boxarar frá HR, BAG og að öllum líkum frá Hnefaleikafélagi Guðmundar Arasonar. Sýningin hefst kl.15:00 og eru allir velkomnir. Boxing.is hvetur sem flesta til að mæta og fylgjast með sýningunni.