Sæll
Sársaukaþol er þessu óviðkomandi, reyndar þarf maður að vera dálítið töff til að nenna að æfa nógu lengi til að verða sæmilegur í þessu en kunni maður sitt fag þá er maður almennt séð ekkert mikið að finna fyrir sársauka.
Úlit er þessu viðkomandi en þó ekki á neikvæðan máta. Ég hef líklegast kafað eins djúpt inn í boxheiminn eins og nokkur annar, en aldrei man ég eftir því að hafa litið neitt verr úr fyrir vikið, þó blæddi einstaka sinnum tímabundið úr nebba mínum í kanski 1-4 mínútur hvert skiptið. Þó kemur útlit þessu við en það kemur hnefaleikum við á jákvæðan máta. “Women like a fighter for two reasons, one he´s always got a little jingle in his pocket and two he´s always in great shape”. Þetta með peningana má reyndar ekki yfirfæra á Íslenska hnefaleika en hitt gildir þó jafnt hér á landi sem og annarstaðar.
Með kveðju
Alexande