Mér datt í hug að vekja athylgi á smá vandamáli sem er að þetta áhugamál er ekki alveg nógu virkt.
Ég perónulega hef verið að reyna að vekja smá athygli á þessu áhugamáli og verið að auglýsa það á nokkrum mjög fjölförnum stöðum og því miður ekki fengið nógu góð viðbrögð. Ég hef sjálfur verið að leggja mig mikið fram við það að skrifa greinar, en því miður án árangurs(upp að vissu marki).
Svo mér datt í hug að þeir sem eru að stunda þetta áhugamál gætu kannski komið smá orðrómi um þessa síðu og kannski sagt vinum og vandamönum sem hafa áhuga á boxi frá þessari síðu.
Svo var það annað sem mér datt í hug hvort það væru eitthverjar hugmyndir frá ykkur til þess að gera þetta áhugamál meria eftirsóttara. Og þeir sem hafa eitthverjar hugmyndir sendið mér skilaboð helst sem fyrst.
p.s. óskandi væri ef fleiri mundu leggja sitt af mörkum við greina skriftir og senda inn kannanir.
Kveðja DFSaint