Ég býst við að Prinsinn sigri Barrera í bardaganum í apríl, enn hann þarf ekkert að búast við auðveldum bardaga.
Barrera er með ótrúlega fjölbreytt úrval að höggum sem hann notar óspart og hann er líka með góða hittni. Það sem ég held að verði Barrera að falli er að hann virðist stundum gefa fullmikið færi á sér og það má enginn við því á móti Prinsinum(nema Wayne McCollough). Þó sýndist mér í bardaganum á móti Jesus Salud um daginn að hann væri eitthvað búinn að bæta það.
Enn þetta verður án efa geggjaður bardagi þar sem Barrera er þekktur fyrir að forðast ekki andstæðinga sína.
Kveðja Rastafari