Arna Valdís, 3ja ára listakona og tölvusnillingur, teiknaði þessa mynd alein, án nokkurrar aðstoðar, í tölvunni minni ;) Þetta eru ég og pabbi hennar og Hjalti Sævar litli bróðir hennar :D
Var að kaupa sumarhúfuna á drenginn, enda eru allar húfurnar sem hann á allt of heitar í þessu dýrðar veðri sem hér er núna (Sól og blíða og 20 stiga hiti í skugganum). Mér finnst Hjalti vera alveg eins og lítill Emil í Kattholti þarna. Vona samt að hann verði ekki alveg eins mikill óþekktarormur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..