Það er alltaf sport að fá að leika sér með eldhúsáhöldin hennar mömmu sko .. sleif og skál, berja þessu saman og búa til hávaða.
Verst að við mömmurnar höfum ekki mikla þolinmæði gagnvart þessu til lengdar .. hehehe.
Minni stelpu fannst gaman á svipuðum aldri að sjá myndaalbúm, fannst mjög spennandi að skoða öll þessi andlit.
Svo er auðvitað týndur fundinn alltaf að slá í gegn hjá svona litlum minnir mig.
Svo er hún kannski orðin of gömul til að hafa áhuga á þessu, en mínum börnum fannst gaman að snerta hluti með mismunandi áferð, td flísefni, ull, og þessháttar, finna muninn á milli.
Svo má byrja að kenna henni að klappa saman lófunum ..
Og að fara í bað í baðstól er fyrir flest börn rosalega gaman :)<br><br>——————————
“Það besta sem Guð hefur skapað er …… nýr dagur”