Vá, GlingGlo varstu að gifta þig í gær??? En ef svo er að ég skildi það rétt þá til hamingju og njóttu vel!!!!!!!!!En ertu ekki að fara að flytja til Noregs eða eitthvað????????
Já ég var að gifta mig í gær :) Og takk fyrir hamingjuóskirnar þið sem senduð þær. Við ætluðum nú alltaf að gera þetta á hefðbundna mátann í kirkju með öllu húllumhæinu, en svo fannst okkur nú bara skynsamlegt að drífa í þessu fyrst við erum bráðum komin með 3 börn og þar að auki að flytja erlendis (jú til Noregs). Þannig að við létum gefa okkur saman hjá sýslumanni í gær og þetta var bara yndislegur dagur og mjög rómantískur :)<br><br>Kveðja, GlingGlo
Hann á samkvæmt planinu að mæta á morgun, en ég býst nú ekkert við að hann sé stundvís frekar en systur hans. Reikna með að bíða í allavegana viku í viðbót, ef ekki tvær :)<br><br>Kveðja, GlingGlo
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..