Svona lærði ég þetta:
Punktur, punktur, komma, strik.
Þetta er hann Óli Prik.
Hálsinn mjór
og maginn stór.
Hendur, hendur.
Sjáðu hvernig Óli stendur.
Eyra, eyra,
því Óli þarf að heyra.
Hár hár hár
og nú er karlinn klár.
Svo hef ég líka heyrt þessa útgáfu:
Punktur, punktur, komma, strik.
Þetta er hann Óli Prik.
Hálsinn mjór
og maginn stór.
Hendur, hendur.
Fætur, fætur.
Finnst þér ekki Óli sætur?
Eyra, eyra,
því Óli þarf að heyra.
Hár hár hár
og nú er karlinn klár.
Svo er oft eyrunum sleppt, mér finnst gaman að hafa þau með :)
<br><br>Kveðja,
GlingGlo