Já, enda hætti ég með minn gaur á brjósti um 8 mánaða. Svo er hann alltaf að naga eitthvað og bíta og það er orðið vandamál sko. Ég er alveg í vandræðum með hvernig ég á að taka á þessu, því hann fer yfirleitt bara að hlægja þegar ég skamma hann fyrir þetta! Er búin að tala við margar konur um þetta og þær segja að maður eigi bara að segja nei og vera smá hasty og láta barnið vita að þetta sé ekki í boði en það virðist ekki vera að virka ;/
Bætt við 25. mars 2009 - 18:54
Það bætir ekki úr skák að það er barn sem bítur á leikskólanum og það hefur bitið hann, sem eykur bara líkurnar á að hann haldi þessu áfram!