Þótt ég hafi þegar sett þetta inn á Deiglunni, fannst mér réttast að setja þetta hér líka. Skaðar engan, eða hvað?
Jæja, loksins sá ég þessa mynd af þessum voðalega dreng með sína hryllilegu kveðju, og tel mig því geta fullyrt að hann er EKKI að gefa nasistakveðjuna.
Í fyrsta lagi, þá heldur hann vinstri handlegg uppi, á meðan nasistar heilsuðu með þeim hægri. Auðvitað er hugsanlegt að myndin sé spegluð, en mér þykir það ólíklegt, auk þess sem litlum krakka dettur það nú varla í hug.
Í öðru lagi er handleggurinn boginn og ekki beinn. “Alvöru” nasakveðja er með beinstífum handlegg, þar sem annað er tákn um leti og hirðuleysi, eitthvað sem fellur ekki að þeirra hugmyndafræði. Ef þú skoðar myndina vandlega, þá muntu sjá handlegg Nicks vera boginn.
Í þriðja lagi, þá gat ég ekki betur séð en að hann hafi verið að benda með vísifingri og löngutöng, kannske þumlinum líka, á meðan hinir tveir fingurnir virðast bognir. Nasistar heilsuðu með alla fingur þráðbeina.
Ef að þetta þrennt er ekki nóg, þá er hér fjórða atriðið: Ég get ekki betur séð en að hann sé að syngja. Ef hann er að syngja, þá er hann sennilega líka að dansa. Þetta virðist því frekar vera hluti dansins heldur en einhver nasakveðja.
En þá komum við að myndatextanum. Því miður man ég hann ekki orðrétt, en í honum er ýjað að því að þetta sé nasistakveðja. Ég tel líklegt að hver sem skrifaði þennan texta hafi bara verið að spauga. Ef ekki, þá virðist hann/hún sennilega frekar fáfróð(ur) um þessi mál.<br><br>Þorsteinn.
“Að gera ekkert, og hvíla sig þess á milli - það er göfug list.” - Afi.