Því miður þá er nú bara mjög líklegt að einhver svona náungi búi í hverfinu þínu þó það sé kannski ekki þessi. Besta leiðin til að taka á því er að vara strákinn þinn við. Fara aldrei neitt með ókunnugum, ekki í bíl, ekki labbandi, ekki inn til þeirra og ef einhver segir eitthvað dónalegt við hann eða vill fá að snerta hann, þá hlaupa strax heim. Þetta var sagt við mig og ég held að ég og mínir bekkjarfélagar hafi engan veginn skilið nákvæmlega hvað það væri sem hætta væri á að þetta fólk gerði við mann enda er það alveg óþarfi að segja honum það. Segðu honum bara að það sé til fólk sem er vont við börn vegna þess að það er veikt í höfðinu eða eitthvað álíka.