Það sem mamma mundi aldrei segja..
“Vertu nú góður strákur og ég skal kaupa mótorhjól handa þér í afmælisgjöf!”
“Hvernig sérðu á sjónvarpið þegar þú situr svona langt í burtu?”
“Vertu ekkert að klæða þig í jakka. Það er svaka fínt veður.”
“Leyfðu mér að þefa af þessum bol…. já, já, þú getur verið í honum í viku í viðbót.”
“Mér finnst draslaralegt herbergi bara vera merki um framkvæmdagleði.”
“Já, ég skrópaði nú líka stundum.”
“Skildu bara eftir öll ljós í gangi. Það gerir húsið bara hlýlegra.”
“Nennirðu að hækka aðeins í græjunum. Ég er alvega að fíla þetta.?”
“Hlauptu og náðu í skærin fyrir mig! Flýttu þér!”
“Iss, snúðu nærbuxunum bara við. Það fattar það enginn.”
“Ég er ekki með snýtubréf. Notaðu bara ermina á nýju peysunni þinni.”
“Nú, ef mömmu hans Tomma er sama, þá er mér alveg sama.”
“Auðvitað máttu hjóla í skólann.”
"Ég verð á fundi langt fram eftir. Er ykkur ekki sama þó að þið pantið bara pítsu?