ég og stína fórum á jólaball um daginn ( fórum reyndar á 2) tókum með okkur slatta af krökkum, vorum 4 með 6 krakka! Þetta var ekkert smá skemmtilegt!
Fyrst var frændi minn ekkert smá feimin, þorði ekki að tala við neinn og bara vildi ekki gera neitt.. svo fór hann að hlaupa með krökkunum og svona.. og svo þegar Jólasveinninn kom, þá alveg gjörsamlega var hann bara “ALEINN” á jólaballinu “jóóóóólaaaasveinnn!!” og stökk til jólasveinsin og bara var með honum allan tíman, hélt í hendina á honum, Þetta var bara þeirra moment, þeir voru bara tveir þarna! og svo þegar jólasveinninn tók hann í fangið þá knúsaði frændi minn hann ekkert smá! ég hef bara aldrei séð hann knúsa neinn svona mikið, og hann er sko ekki vanur að tala við ókunnuga! en þetta var auðvitað jólasveinninn ;)<BR