Einu sinni átti ég geðveikt flotta skó, þeir voru svona gulir með mynd af Mikka Mús á.. ég gleymi þeim aldrei..
Svo einu sinni var ég úti að leika mér að labba á svona spítu sem snéri upp og það voru fullt af nöglum á henni.. var að labba á milli naglanna… (Gáfað haa..) og svo auðvitað steig ég á einn naglann og ég hljóp grenjandi heim.. og sagði mömmu að ég hefði stigið á nagla…
mamma: meiddiru þig mikið
ég: nei en ég skemmdi skóinn minn….