Mamma sagði alltaf við bróðir minn að þegar hann var búnað vera svo lengi í baði að hann var komin með svona rúsínuputta og tær.. (æ svona krumpur) hún sagði svo einu sinni við hann að hann væri orðin úldinn, hann væri búnað vera svo lengi í baði…
En hvað um það svo fór hann í sund með leikskólanum sínum og ein fóstran var frekar sona þétt.. frekar mikið..
Svo þegar mamma komað ná í hann þá hafði hann sko fréttir að færa “Mamma, hún Soffía, hún er bara úldin allstaðar!!!” Mamma alveg ha hvað meinaru..?“ þá fór krakkin að útskýra þetta aðeins betur fyrir henni… Mamma fékk sjokk! ”og ekki sagðiru henni það?“ sagði hún þá..
”júh ég sagði henni það þegar við vorum í sturtu" svaraði sá stutti…