Ætla að skrifa hérna ljóð sem mér finnst soldið flott
Barnagæla eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur
segðu mér sögu
segðu mér söguna af því
þegar þú dast í sjóin
þegar þú braust rúðuna
þegar þú tjargaðir hanann
þegar þú kastaðir grjóti í gumma
þegar þú söngst klámvísuna fyrir ömmu þína
þegar þú laugst að afa þínum
þegar þú skiptir um haus á fiskiflugunum
þegar þú stiklaðir yfir ána rétt ofan við fossinn
þegar þú skreiðst undir girðinguna á rósuhústúninu
þegar þú drapst rottuna
þegar þú gekkst aftur á bak ípoll í sparikjólnum
þegar þú reifst nýju svuntuna
þegar þú drakkst brunnklukkuvatn
þegar þú skemmtir skrattanum á sunnudegi
þegar þú kvaldir ljósið á jólunum
þegar þú hlóst í kirkjunni
þegar þú klifraðir uppá dvergasteininn
þegar þú bentir á skip
þegar þú steigst á strik
þegar þú blótaðir þrisvar í röð
þegar þú varst lítill strákur
eins og ég og mamma mín