Emma Litla Þetta er hún Emma Litla frænka mín. Barn með fallegustu augu sem ég hef á æfi minni séð. Ég á ekki nógu góða mynd þar sem sést í augun á henni en ég reyni að redda því. Hún býr í Grikklandi þar sem hún er svona 2/3 grísk og þetta var í fyrsta skifti sem ég sá hana fyrir utan video úr skírninni hennar. Allan tíman var hún bara syngjandi jólalög ;) Einstaklega gáfað barn. Hún er 1 1/2 árs og kann Heims um ból og svona jólalög. Heldur laginu þó svo ég skilji nú ekki alveg textan hjá henni þá þekkir mar lagið vel. Bróðir minn stökk í Jólasveinabúning og kom til hennar. Fyrsta skifti sem hún sá Jólasveininn. Hún var nokkuð hrædd við hann þó svo hann hafi rétt henni pakka. Hann stóð á gólfinu og sagði “hóhóhó” og söng smá jólalag. Svo fór hann bara. Og um leið og hann var búin að loka hurðinni, benti hún á hurðina og sagði “hóhóhó” Svo seinna um kvöldið sofnaði hún og svo vaknaði hún þegar hún varað fara heim, sá jólasveinabúninginn og “hóhóhó” :)

Úff þetta átti fyrst bara að vera smá texti við myndina..