Í sambandi við umræðuna um klám á popp tv.

Ég nenni ekki að blanda mér í þessar umræður hérna fyrir neðan þar sem hún er yfir full að unglingum sem eru bara að rífa kjaft og vera fyndinn.

Mér langar að vita hvað uppalendum finnst um td. myndbönd, mikið af þeim er full gróft en mér finnst samt ekki að ég geti sagt við strákin minn að hann megi aldrei horfa á popp tv. hann er 8 ára og er eðlilega vaxin upp úr barnalögum.

Mér td þætti mjög fínnt ef grófari lögin væru eftir td kl 18:00…þá gæti hann horft þangað til en aldrei eftir þann tíma.

Ég geri mér fulla gein fyrir því að kynlíf selur en ég sé ekki hvað er að því að hafa kynlíf á ákv. tíma þannig að foreldrar fái tækifæri til að passa upp á grísina sína.

kv
aa