Ekkert aldurstakmark, bara að þú getir hagað þér eins og maður og sért ekki með nein fíflalæti :)
Annars er líka eitt sem er gott að vita, það er að spyrja alltaf þann sem á módelið áður en maður tekur það upp og skoðar það, (það gildir um alla), ekki vegna þess að viðkomandi treysti þér ekki, heldur vegna þess að sumir eru með segulstál undir köllunum sínum eða eru með járnparta hér og plastparta hér á einu módeli, þetta tvennt eykur líkurnar hrikalega á að þú beitir hendinni vitlaust á módelið og eyðileggir.