Hey, allt í lagi :) Skiptir mig ekki miklu máli. En til að svara spurningu þinni þá þýðir undircotað að ég er búinn að setja grunnmálningu yfir módelin. Þú þarft alltaf að spreyja grunnmálningu á módelin áður en þú byrjar að mála þau. Og 50% afsláttur þýðir að þú færð módelin á um 2500kr (mig minnir að kassinn kosti um 2500, ekki alveg viss samt).
En ef þú ert byrjandi, sem ég held að þú sért, skaltu vanda valið MJÖG vel áður en þú byrjar að safna. Ekki gaman að eyða pening í einhvern her og komast svo að því að þú hefur áhuga á einhverjum öðrum.