Mér hundleiðist og þessvegna langar mig að vita hvernig á að bús til umhverfi. Bæði fyrir 40k og fantasý og líka fleirra.
Ég hef sjálfur ekki grænan grun um hvernig á að gera neitt því ég á eftir að fara á málningarnámskeiðið hjá Nexus á laugardögum.
Samt se áður langar mig mjög mikið til að búa til umhverfi sem ég get gert sjálfur og haft heima hjá mér og spilað í við vini mína og marga aðra andstæðinga.
Ég á nóg efni í ágætt umhverfi en ég kann ekki að búa til umhverfi og hingað til höfum við vinirnir notast við bækur og fleira drasl til að spila í og það sem var verst að við þurftum að spila með peningum því við eigum ekki nein módel nem ómálaða Imperial Guards og enginn af okkur spilar Imperial Guards. En það fer að breytast MJÖG fljótt því við erum að fara á málningarnámskeiðið hjá Nexus og þá verður fjör eftir það að mála kallana og að spila með þeim.
Svo endilega komið með tillögur og segið endilega frá umhverfi sem þið hafið gert og aðferðirna sem þið notuðuð til að búa það til.